Í febrúar var lífsskoðunarfélagið Vitund skráð. Í því eru aðeins þrír meðlimir, Páll Ágúst Ólafsson, fyrrum sóknarprestur á Staðastað og lögmaður, móðir hans Dögg Pálsdóttir lögmaður og Helga Baldvins Bjargardóttir. Þau eru öll lögmenn á lögmannsstofunni ÍsMál en þar er Vitund skráð til húsa.
Á sama stað er einnig félagið Love Iceland skráð en það sér um brúðkaupsþjónustu. Það er í eigu Karenar Lindar Ólafsdóttur prests í Hjallakirkju og eiginkonu Páls Ágústs. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag.
Love Iceland er rétthafi lénsins vitund.is. Á vefsíðu félagsins segir að félagið sinni athöfnum á borð við giftingar. Lítil virkni hefur verið á vefsíðunni en annað gildir um Facebooksíðu félagsins þar hafa verið reglulegar stöðuuppfærslur frá 2016.
Páll Ágúst hefur verið í sviðsljósinu að undanförnu vegna deilna hans við biskup Íslands og þjóðkirkjuna. Þau mál enduðu fyrir dóm þar sem Páll Ágúst hafði sigur. Snerist málið þá ákvörðun Páls að flytja frá prestsetrinu á Staðastað þar sem hann taldi húsið óíbúðarhæft. Í framhaldi var embættið lagt niður.
Hann komst einnig í fréttir nýlega þegar skýrt var frá því að hann hefði haft milligöngu um samskipti bandarískra aðila og þrotabús WOW air.
Í samtali við Fréttablaðið sagði Páll að hann hafi eingöngu tekið að sér að koma Vitund á laggirnar sem lögmaður, hann hafi eingöngu haft aðkomu að þessu sem lögmaður og að þetta tengist deilum hans við biskup ekki á neinn hátt.
Helga sagði að Vitund væri hópur fólks sem væri meðvitað um eigin forréttindi og jaðarstöðu annarra, þetta sé félagsskapur fólks sem vill iðka mannréttindi. Hún sagði félagið sjá um athafnir og að Páll Ágúst hafi að mestu séð um þær fram að þessu en hann sagðist hins vegar ekki sjá um þær. Hún sagði að nokkrir tugir væru í félaginu.