Höfuðborgarsvæðið: reykjavík ódýrust

Reykjavík er ódýrasta sveitarfélag höfuðborgarsvæðisins en Hafnarfjörður það dýrasta. Fjögurra manna fjölskylda græðir 200 þúsund krónur á ári á að búa í Reykjavík fremur en Hafnarfirði og munurinn er enn meiri fyrri einstætt foreldri með börn á leikskóla.

Þetta kemur fram í samantekt Fréttablaðsins í dag þar sem tekið er tillit til fasteignaskatta, lóðarleigu, sorphirðu, holræsagjalda, leikskólagjalda, skólamáltíða, frístunda og sunds. Þegar þessi listi er reiknaður saman kemur Reykjavík best út, en þar á eftir Seltjarnarnes, Garðabær, Mosfellsbær, Kópavogur og loks Hafnarfjörður.

Í ljós kemur að mikill munur er á þessum gjöldum milli bæjarfélaganna - og má þar til dæmis nefna að leikskólagjöld eru hæst í Garðabæ en lægst í Reykjavík og munar þar 125 þúsund krónum á ári fyrir eitt barn. 

Heildarmunurinn á milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, ódýrasta og dýrasta sveitarfélagsins er sem fyrr segir 200 þúsund krónur á ári fyrir fjögurra manna fjölskyldu en allt að 400 þúsund krónur á mánuði fyrir einstætt foreldri með þrjú börn. Mestur er munurinn ef dæmi er tekið af einstæðu foreldri með tvö börn á leikskóla en fyrir þá þjónustu er greiddar 274 þúsund krónur á ári samanborið við 635 þúsund í Hafnarfirði - og munar þar 230%.