Einn maður hlaut höfuðkúpubrot eftir árás í Vestmannaeyjum í gærmorgun og liggur á spítala. Annar maður varð einnig fyrir árásinni og hlaut hann tannbrot. Þrír menn voru handteknir vegna málsins og var þeim sleppt úr haldi í gærkvöldi eftir skýrslutökur.
Þolendur árásarinnar voru sendir með sjúkraflugi til Reykjavíkur í gær. Tryggvi Kr. Ólafsson, lögreglufulltrúi í Vestmannaeyjum, segir mbl.is að búið sé að ræða við vitni að árásinni, sem átti sér stað á svokölluðu VIP-tjaldsvæði þjóðhátíðargesta.
Nánar er fjallað um málið á vef Morgunblaðsins.