Útlit er fyrir að þau skref sem væntanlega verða tekin á næstu vikum í átt að afnámi gjaldeyrishafta verði hvorki stór né merkileg. Samkvæmt heimildum hringbrautar.is innan úr stjórnkerfinu bendir flest til þess að meira verði um umbúðir að ræða en innihald. Stíft hefur verið fundað vegna mögulegra útfærslna á afnámi haftanna síðustu vikur og mánuði, en enn mun engin augljós leið hafa fundist sem tekur heildrænt á vandanum.
Eins og þeir sem gerst fylgjast með þjóðmálaumræðunni hafa tekið eftir hefur mikið verið gert úr því að hálfu stjórnvalda að gjaldeyrishöftin muni brátt heyra sögunni til. Heimildir hringbrautar.is herma að þær aðgerðir sem brátt verði kynntar munu fremur líkjast nafnabreytingu á gjaldeyrishöftum en raunverulegu afnámi þeirra. Fari svo sem fróðir menn spá, minna vinnubrögðin á þá tíma þegar látið var af gengisfellingum þó svo gengið héldu áfram að falla; nafnið sjálft, gengisfelling, var þá orðið svo mikið skammaryrði í þjóðmálaumræðunni að hætt var við að nota það en þess í stað farið að nota orðið gengissig yfir sama fyrirbærið.
Höftin varla afnumin í bráð
Fleiri fréttir
Nýjast