Höftin í gegn í skiptum fyrir rammann?

Þingreyndir blaðamenn og stjórnmálafræðingar muna vart aðra eins hörku og einkennt hefur þingstörfin síðustu daga, en þau lýsa sér öðru fremur af því að allar hefðir í þinginu eru virtar að vettugi.


Meðal þeirra er samtal oddvita flokkanna á þingi, sem um langt árabil hefur verið eðlilegt samtal í hliðarsölum á meðan pólitískri vígfimi heldur fram í aðalsal. Það samtal er að engu orðið - og segir það nokkra sögu um illindin  að formaður annars stjórnarflokksins var talaður niður úr ræðustól Alþingis í gærdag sem mun vera einsdæmi.


Allt snýst þetta um rammann; hvort stjórnin ætli að halda föst við sinn keip og víkja hvergi frá fjölgun virkjanakosta - ellegar að andstaðan kannist við þann pólitíska veruleika að hún sjálf krukkaði í rammann á sinni vakt.


Á áttunda hundrað ræður hafa verið fluttar um fundarstjórn forseta sem er hún leið sem stjórnarandstaðan hefur hverju sinni til að tefja framhald þingfundar og þingstarfa. Þingmenn stjórnarflokka notuðu þennan lið óspart á síðasta kjörtímabili, en kvarta einmitt enn sárar undan honum núna.  


Ríkisstjórnin hefur vart komið helftinni af frumvöroum sínum áleiðis á yfirstandandi þingi. Sumarþing mun þar litlu breyta - og miðað við ástandið er vart hægt að ætla að stórmál eins og höftin komist í gegn, nema - og einmitt í ljósi aðstæðna - í býttum fyrir rammann.