Rannsóknir hafa sýnt fram á að hófleg drykkja, hvort sem það sé rauðvín, hvítvín, bjór eða sterk vín, geti dregið úr líkunum á því að fullorðnir einstaklingar þrói með sér hjarta- og æðasjúkdóma.
Þetta kemur fram á vefsíðunni hjartalif.is þar sem fjallað er um tengsl áfengisdrykkju og hjartaheilsu.
Þar eru nokkrar ástæður taldar upp fyrir því að hófsöm áfengisneysla geti hjálpað hjartanu:
- Hækkar góða kólesterólið HDL
- Minnkar líkur á blóðsegamyndun (blóðtappi)
- Dregur úr bólgum
- Eykur virkni andoxunarefna (rauðvín inniheldur andoxunarefni sem kallað er flavonoids)
En hvað er lítil eða hófsöm áfengisdrykkja? Fín lína getur verið á milli heilbrigðrar neyslu og áhættusamrar neyslu áfengis. Talið er að tveir til sjö drykkir á viku teljist sem lítil eða hófsöm notkun á áfengi. Meiri drykkja getur valdið skaða á hjarta og lifur, en hjartasjúkdómar eru leiðandi orsök dauða hjá fólki sem misnotar áfengi.
Þrátt fyrir að hófleg neysla áfengis geti komið í veg fyrir hjartasjúkdóma er ekki þar með sagt að mælt sé með því að drekka áfengi til þess eins að vernda hjartað. Vissulega eru margar mun árangursríkari leiðir til að koma í veg fyrir hjartasjúkdóma:
- Hafa stjórn á blóðþrýstingi og kólesteróli
- Stunda líkamsæfingar, ganga og borða heilbrigt mataræði sem passar þér
- Reykja ekki
- Halda þig í kjörþyngd.