Mörgum brá í brún þegar fregnir bárust af því að íþróttafréttamaðurinn vinsæli, Hörður Magnússon, eða Hödd Magg eins og hann er gjarnan kallaður hefði verið rekinn frá Sýn. Hörður hefur í tæp tuttugu ár sýnt mögnuð tilþrif við að lýsa leikjum og ástríðan fyrir starfinu leynir sér ekki. Herði var að vonum brugðið vegna brottrekstursins. Við tókum saman margar af hans bestu frammistöðum sem og að birta þegar Auðunn Blöndal og Guðjón Þórðarson plötuðu Hörð í falinni myndavél. Allt eru þetta óborganleg myndskeið.
Hörður hefur verið potturinn og pannan á íþróttadeildinni og er afar vinsæll. Hann hefur sýnt mögnuð tilþrif við að lýsa leikjum og þá hefur hann oft sýnt stjörnuleik í auglýsingum fyrir Pepsí-deildina og eins ef hann hefur tekið að sér að auglýsa vörur fyrir fyrirtæki. Hörður er líka umdeildur og hefur oft ratað í fréttir vegna ummæla á samfélagsmiðlum.
Í þessari umfjöllun ætlum við hins vegar ekki að dvelja við það. Á Youtube og Facebook eru til ótal myndskeið þar sem Hörður missir sig við lýsinga leikja, þá sló auglýsing fyrir Húsasmiðjuna einnig í gegn og þá er hér fyrir neðan einnig að finna bráðfyndið myndskeið þegar Auðunn Blöndal og Guðjón Þórðarson plötuðu Hörð í falinni myndavél í þættinum Tekinn. Hver man svo ekki eftir þegar Hörður sturtaði Króötum niður í klósettið! Eða þegar hann var að auglýsa Pepsí-deildina fyrir síðasta sumar þar sem hann sagði:
„Ég er búinn að missa allt. Mannleg nánd, ég hef ekki kynnst henni í heilt ár. Ég á enga fjölskyldu lengur. Ég fæ ekki boð í fermingar, blokkaður á Facebook.“
En vindum okkur í þetta. Hér fyrir neðan má sjá og hlusta á Hörð taka hvern tryllinginn á fætur öðrum. Án efa eru margir sem óska þess að hann komi sem fyrst aftur til starfa í fjölmiðlum enda einn ástsælasti íþróttafréttamaður þjóðarinnar. Góða skemmtun!