Hnýsið fólk skoðar innkaupakörfu forsætisráðherra: viðurkennir að skoða í körfuna hjá öðrum frægum

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra viðurkennir að hún hafi verið meðvirk en hafi ákveðið að taka það vandamál föstum tökum fyrir um fimm árum síðan. Katrín var gestur Fannars Sveinssonar í þættinum Framkoma sem sýndur er á Stöð 2. Þar er þekktum Íslendingum fylgt eftir. Þar kom í ljós að Katrín fylgist með hvað þekktir Íslendingar kaupa inn, verði hún var við þau í stórmörkuðum og eins segir hún aðra fylgjast með hennar innkaupum.

Þegar Katrín var spurð hvort hún væri meðvirk sagðist hún hafa unnið í því í mörg ár.

„Ég er orðin töluvert mikla minna meðvirk en ég var fyrir svona fimm árum. Ég tók ákvörðun (um það) fyrir nokkrum árum,“ svaraði Katrín. Fannar spurði þá:

„Nú ert þú mjög þekkt á Íslandi. Finnst þér það há þér. Þegar þú ert ekki í vinnunni, þegar þú ert í Bónus ..“

„Það háir mér að sumu leyti,“ greip Katrín fram í og hélt áfram: „Eins og í búðinni, bara vegna þess að þú nefnir það, þá er maður að kaupa inn, þá sé ég, alveg eins og ég geri líka, ef ég sé einhvern frægan,“ sagði Katrín og tók söngvarann Stefán Hilmarsson sem dæmi: „ ... hvað er hann að kaupa. Svo horfa allir í körfuna mína, þeir gerðu það ekki.“

Bætti Katrín við að nú tæki hún ekki lengur kannski fullan poka af kúlusúkk en setti þá frekar grænmeti í körfuna.

„Það er meðvirknin, svo bara segi ég við börnin, nennið þið að fara út og kaupa nammi.“