Píratar og Sjálfstæðisflokkur eru hnífjöfn í nýrri fylgiskönnun MMR. Báðir flokkarnir mælast með 22,7 prósenta fylgi. Píratar bæta ögn við sig milli kannanna en Sjálfstæðisflokkurinn missir tvö prósenstustig, sem er það nálægt því sem Viðreisn bætir við sig milli kannanna.
Vinstri græn bæta við sig, mælast með 13,2 prósent, sem er tæpu prósenti meira en síðast. Viðreisn mælist með 11,5 en var með 8,8 síðast. Framsóknarflokkurinn mælist með ellefu prósent, ögn meira en síðast og Samfylkingin er með 8,1 prósent en var með 9,1 síðast.
Björt framtíð mælist með 4,1 en var með 4,5 síðast. Íslenska þjóðfylkingin er með 2,2 prósent og aðrir minna.