Bogi Ágústsson fréttamaður segir í heimsljósi í kvöld að Lars Lökke Rasmussen formaður Venstre spili á innflytjendapólitíkina til að afla vinsælda í kosningabaráttunni sem nú er í algleymingi í Danmörku.
Lökke geri lítið úr nýsköpun starfa í stjórnartíð Helle Thorning Schmidt forsætisráðherra og haldi því fram að aðeins 700 Danir hafi fengið störf á síðasta kjörtímabili, hin hafi öll farið til útlendinga.
Björg Eva Erlendsdóttir, ritari flokka Vinstri grænna í Norðurlandaráði, tekur í sama streng og segir að þar með hafi innflytjendapólitíkin komist á nýtt svið í dönskum stjórnmálum, hún sé ekki lengur einkamál Danska þjóðernisflokksins heldur meginstefnumál minnst þriggja flokka bláu blokkarinnar.
Danir ganga til þingkosninga eftir rétta viku. Ákaflega mjótt er á munum milli hægri og vinstri flokkanna og fylgið sveiflast milli rauðu og bláu blokkanna dag frá degi. Ómögulegt er að segja til um hver úrslitin verða þann 18. júní en hitt er öllu ljósara að æsispennandi kosningabarátta er framundan næstu vikuna.
Erlendi fréttaskýringaþátturinn Heimsljós er sumsé lagði undir dönsku þingkosningarnar í næstu viku, en gestir Sólveigar Ólafsdóttur eru þau Bogi og Björg Eva ásamt Sigurði Ólafssyni stjórnmálafræðingi og verkefnisstjóra Norðurlanda í fókus, og Hrannari Birni Arnarsyni framkvæmdastjóra jafnaðarmanna í Norðurlandaráði.
Danir ganga til þingkosninga eftir rétta viku. Ákaflega mjótt er á munum milli hægri og vinstri flokkanna og fylgið sveiflast milli rauðu og bláu blokkanna dag frá degi. Ómögulegt að segja til um hver úrslitin verða þann 18. júní og æsispennandi kosningabarátta sé framundan næstu vikuna.