Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforingi á Akrarensi segir „algjörlega ótrúlegt“ að verð á bensíni hafi lækkað um 12,1 prósent á sama tíma og heimsmarkaðsverð á olíu hafi lækkað um 57 prósent.
„Í staðinn fyrir að skila þessu til íslenskra neytenda þá hafa olíufélögin frekar kosið að auka álagningu sína heldur en að láta íslenska neytendur njóta góðs af því. Það þýðir ekki fyrir olíufélögin að skýla sér á bakvið íslensku krónuna því hún hefur lækkað umtalsvert gegn dollara,“ segir Vilhjálmur í pistli á Pressunni.
Hann spyr: „Hvar eru nú snillingarnir hjá Samtökum atvinnulífsins og hinir ýmsu sérfræðingar í íslensku samfélagi sem telja að óðaverðbólga sé í kortunum vegna launahækkana launafólks? Af hverju gera þessir snillingar ekki kröfu á að olíufélögin skili þessari gríðarlegu lækkun til neytenda, enda vita allir sem vita vilja að olíuverð hefur gríðarleg áhrif á neysluvísitöluna þar sem margir þættir olíuverðs snerta mælinguna á vísitölunni. Nægir að nefna þar eldsneytiskostnað heimilanna, flutningskostnað, flugfargjöld og svo framvegis.“
Verkalýðsforinginn bætir við: „Ég myndi vilja sjá þessa sömu einstaklinga hjá Samtökum atvinnulífsins sem eru að spá hér að verðtryggðar skuldir heimilanna séu að hækka um 350 milljarða vegna hækkunar á verðbólgu beiti sér fyrir því að aðildarfélög þeirra í olíugeiranum skili þessari lækkun til íslenskra neytenda og það strax. „
Lesa má pistil Vilhjálms hér.