Átta mánaða reisa í kringum hnöttinn breytir lífi manns, segir Teitur Þorkelsson sem lífsstíls-, ferðaþátturinn Ferðalagið heimsækir í þætti kvöldsins. Teitur, sem hefur ferðast til yfir 40 landa starfaði sem fréttamaður á Íslandi og var m.a. talsmaður alþjóðlega vopnahléseftirlitið á Sri Lanka fyrir mörgum árum. Núna sinnir hann m.a. farastjórn fyrir Extreme Iceland.
Teitur segir að eftir hálft ár í Asíu, Ástralíu og Kyrrahafseyjunum hafi hann upplifað áður óþekkta slökun. Hann gefur einnig góð ráð um hvernig megi leigja skútu og sigla um Grikklandsstrendur.
Þátturinn Ferðalagið er á sínum stað á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl.21. Umsjónarmenn eru Sigmundur Ernir og Linda Blöndal.