Hnakkrifist um rammaáætlun á þingi






Þingfundur stóð á Alþingi til miðnættis í gærkvöld og var þá síðari umræðu um rammaáætlun frestað. Henni verður framhaldið á þingfundi síðar í dag, en boðað hefur verið til mótmælaaðgerða náttúruverndarfólks á Austurvelli síðdegis í dag. .






 







Heiftarlegar deilur eru á milli stjórnarliða og stjórnarandstæðinga um mögulegar boðaðar breytingar stjórnvalda á rammaáætlun í þá veru að taka nokkra virkjanakosti úr biðflokki og færa yfir í nýtingarflokk. Umræðan á Alþingi ber þess merki, enda hafa þung orðið fallið í umræðum um málið - og formenn nefnda verið uppnefndir við mismikla hrifningu tilhlýðenda í sal.   


Aðeins framsögumenn nefndarálita og Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra höfðu flutt ræður sínar þegar þingfundi lauk um miðnætti. Fimmtán þingmenn eru á mælendasksrá, tólf þingmenn stjórnarandstöðu og þrír stjórnarliðar. Langmestur tími fundarins fór í umræðu um fundarstjórn forseta enda gríðarlegt ósætti er um þetta mál milli stjórnar og stjórnarandstöðu eins og fyrr segir.


Umhverfisráðherra ítrekaði þá skoðun sína að hún styðji virkjanakostina þrjá í neðri Þjórsá en að Hagavatnsvirkjun, sem meirihlutinn hefur viljað færa úr biðflokki í nýtingarflokk þurfi frekari rannsókn. Hún sagðist margoft hafa lýst þessari skoðun bæði í fjölmiðlum og á Alþingi. „Ég hef sagt það áður úr þessum ræðustól og get endurtekið það að mér hefði fundist í lagi þótt atvinnuveganefnd hefði sett kostina þrjá í Þjórsá fram vegna þess að þeir hafa þó allir verið að mestu rannsakaðir og menn sem eru nú að störfum við verkefnastjórninn hafa sagt að það hefði vantað hársbreidd upp á að þeir hefðu verið búnir að skila öllum þremur kostunum af sér,“ sagði ráðherra.


Mótmælin á Austurvelli heefjast klukkan 16.30 í dag.