Hlýtur sömu örlög og jónas

Einhvern tímann var sagt að Framsóknarmenn felli ekki foringja sína. RÚV og Fréttablaðið rifjar upp að um helgina hafi í fyrsta sinn sitjandi formaður Framsóknarflokksins verið felldur frá því Hermann Jónasson felldi Jónas frá Hriflu árið 1944. Stundum hafa þessir tveir foringjar einmitt verið líkt saman, Jónasi og Sigmundi.

Svo nú er brotið blað í sögu flokksins. Og spurningarnar hanga margar í loftinu: Mun Sigmundur sitja áfram í oddvitasætinu í Norðaustur kjördæmi eða mun hann afþakka það og hætta? Tekst Sigurði Inga að þjappa flokknum saman í tíma fyrir kosningar?  Líkt og vanalega, eykst fylgi flokka – og nú Framsóknar – þegar umfjöllun er mikil og áberandi.  Þegar þessu lægir kemur hið sanna próf á hvað flokkurinn hefur mikið fylgi í raun.

Þingflokksfundur verður í dag og þar hljóta menn að taka svolítinn tíma til að setjast í hring og haldast í hendur, svipað og nýr formaður bað flokksmenn um á þinginu í gær.