Hlýtur að vera markmið allra að ná samkomulagi

Í gær sleit Starfsgreinasamband Íslands kjaraviðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir stöðuna alvarlega en að það hljóti að vera markmið allra að að ná samkomulagi. Mbl.is greinir frá.

„Þetta er al­var­leg staða. Í sjó­manna­verk­fall­inu misst­um við viðskipta­vini af því að við gát­um ekki af­hent. Eft­ir það komu ekki all­ir okk­ar viðskipta­vin­ir til baka og ég að sjálfsögðu ótt­ast það ef við erum að fara inn í verk­föll tveim­ur árum seinna.“ seg­ir Þor­steinn Már í sam­tali við Mbl.is.

Hann segir kjara­deil­ur vera mjög al­var­leg­ar fyr­ir bæði atvinnu­rek­end­ur og launþega. „Það hlýt­ur að vera mark­mið okk­ar allra að ná sam­komu­lagi og ég vona að okk­ur tak­ist það.“