Hlynur Már boðar til samstöðufunda til stuðnings starfsfólki bráðamóttökunnar

Hlynur Már Vilhjálmsson, verkamaður á Bráðamóttöku og á Landspítala við Hringbraut, hefur boðað til samstöðufunda til stuðnings starfsfólki bráðamóttökunnar.

Hann segir landsmenn þurfa að vakna og svara kalli heilbrigðissérfræðinga á bráðamóttökunni.

Hlynur Már skrifaði pistil sem birtur var á vef Vísis. Hann kallar bráðamóttökuna vígvöll miðað við ástandið þar í dag.

Að sögn Hlyns Más hefur heilbrigðisstarfsfólk hrópað og kallað á hjálp í lengri tíma en að enginn hafi hlustað.

Nú séu margir að gefast upp og því sé nauðsynlegt að svara kalli þeirra. „Ég tel að það sé fátt mikilvægra í lífi Íslendings í dag. Þetta ástand setur okkur öll í hættu.“

Að sögn Hlyns Más er bráðamóttakan ein af grunnundirstoðum samfélagsins sem ekki má trassa við að sinna af alúð.

Hann segir nauðsynlegt að krefjast frekara fjármagns fyrir bráðamóttökuna svo hún geti sinn sinni þjónustu.

„Það er ekki í boði að snúa umræðunni á hvolf eða fyrir ráðherra ríkisstjórnarinnar að benda á hvorn annan.

Við þurfum aðgerðir sem færa opinberu heilbrigðisþjónustu Landspítalans upp á það stig að vera fyrirtaks,“ segir Hlynur Már meðal annars í pistli sínum.

„Við megum ekki við því að missa okkar sérhæfða fólk af Bráðamóttökunni en ef ekkert gerist á næstu mánuðum fer þá fjöldi uppsagna þeirra í gegn.

Þess vegna verðum við að fjölmenna á Austurvelli með kröfur okkar um fyrirtaks opinbert heilbrigðiskerfi og mig langar að bjóða þér með,“ segir Hlynur Már í lok pistils síns.

Hægt er að lesa pistil Hlyns Más í heild sinni hér.