„Kannski var ótímabært að skrifa pistla á netið og reyna að segja frá reynslu minni? Kannski þarf ég að vera edrú í einhvern tíma til þess að mega miðla af minni reynslu? Kannski voru það mín mistök að leyfa fólki að fylgjast með edrúgöngu minni? Kannski er ísland ekki tilbúið í síðu eins og það er von?“
Þetta segir Hlynur Kristinn Rúnarsson einn þekktasti fyrrverandi fangi á Íslandi. Áður en Hlynur var handtekinn í borginni Fortaleza í Brasilíu undir lok árs 2015 með mikið magn af kókaíni vakti hann athygli fyrir afar umdeilda pistla sem voru birtir á Menn.is. Eftir að Hlynur losnaði úr og kom aftur til Íslands var hann í mikilli neyslu og reykti þá orðið kókaín. Hann kveðst hafa verið án fíkniefna í rúma þrjá mánuði og hefur fengið leyfi skólastjórnenda til að ræða við krakka og segja þeim sögu sína. Hefur Hlynur stofnað sérstaka síðu til að halda utanum frásagnir af þeim bata sem hann kveðst vera í. Hann var svo í stóru viðtali við Mannlíf í dag og hafði áður verið í ítarlegu viðtali á N4. Í kjölfarið var varað við Hlyni. Hann hefði verið ofbeldismaður sem hefði lagt hendur á konur og væri aðeins búinn að vera án fíkniefna í skamman tíma. Þá birti Stundin ítarlegt viðtal og umfjöllun við konur sem sökuðu Hlyn um að beita þær ofbeldi. Hlynur virtist ekki vera tilbúinn að taka ábyrgð á því sem hann hafði gert og hefur neitað að hafa beitt líkamlegu ofbeldi, eða þar til hann loks viðurkenndi það í Stundinni.
Eftir að viðtalið í Stundinni birtist, skrifaði hann pistil sem strax varð umdeildur, þar sem mátti skilja að hann varpaði ábyrgðinni yfir á konurnar í stað þess að taka fulla ábyrgð á því sem hann hafði gert. Hlynur birtir pistil nú í morgun á Facebook-síðu sinni. Þar segir Hlynur:
„Kannski er betra að sparka mig niður og valda fjölskyldu minni svefnlausum nóttum og vanlíðan? Kannski er það rétt að öll mín rifrilfi yfir lífsleiðina eigi heima í fjölmiðlum því að ég er að gera mitt besta og reyna að vera fyrirmynd. Ég get sagt ykkur það að þessi síða hefur gefið mér svo mikið. Að fá að skrifa um tilfinningar neyslunnar og hvernig viðsnúningurinn er.“
Þá segir Hlynur einnig: „Ég er alveg búinn að gráta yfir þeim sem hafa staðið með mér í því að núna í dag er ég að gera góða hluti.“
Þá viðurkennir Hlynur að hann hafi ekki unnið sporin 12 í AA-samtökunum. Kveðst hann enn eiga eftir að hitta fólk sem hann skaðaði eða særði á meðan hann var í neyslu og reyna þannig að bæta fyrir það sem hann hafi gert.
„Mér finnst það samt vera milli mín og þeirra aðila en ekki allra á íslandi hvenær ég geri það,“ segir Hlynur Kristinn og bætir við að lokum:
„Fjölskylda mín er vansvefta og er ég með sjálfsvígshugsanir (áður fyrr flúði ég tilfinningar í efni en núna er ég edrú, þannig það virðast koma hugsanir um öðruvísi flótta) því það virðist engu skipta hvort ég er edrú eða í því... þá virðist ég alltaf koma mér í þannig stöðu að fjölskylda mín þjáist útaf mér. Athyglissjúki ég. Það er Von - eða er það?“