Hlýnun sjávar hefur gengið til baka

Fara þarf allt aftur til ársins 1997 til að finna jafn kaldan sjó við landið allt frá Suðausturlandi, vestur fyrir Reykjanes og allt að Vestfjörðum samkvæmt nýlegum mælingum Hafrannsóknastofnunar.


Samkvæmt mælingunum hefur sjórinn á þessu svæði kólnað um eina til einnar og hálfrar gráðu frá því á síðasta ári sem er veruleg breyting á skömmum tíma. Héðinn Valdimarsson haffræðingur hjá stofnuninni telur að hlýnunin undanfarin 15 ár hafi í reynd gengið til baka.  Hann segir í samtali við Morgunblaðið í dag að viðvarandi norðlægar áttir suður af Grænlandi og út af Labrador í vetur hafi hér mikil áhrif; þær hafi kælt hafið og valdið því að upphitun sólar hafi ekki orðið sem skyldi.


Hann er spurður hvort þetta sé merki um að Golfstraumurinn sé að veikjast: "Straumarnir eru áfram til staðar en sjórinn í þeim er kannski að blandast og breytast. Við fáum meira af ferskari og kaldari sjó," segir hann við blaðið.