Hlýnar í flestum landshlutum á morgun og hiti verður vísast á bilinu 1 til 6 stig en áfram þó vægt frost á Norðurlandi og dálítil él um tíma, að því er fram kemur í nýjustu veðurspá Veðurstofu Íslands.
Í dag verður austan- og norðaustanátt, víða 8-13 m/s, en 15-23 syðst á landinu og í Öræfum fram eftir degi og aftur síðdegis á morgun. Skýjað með köflum um landið vestan- og norðanvert, en skýjað og dálítil él eða slydduél suðaustan- og austanlands. Bætir í úrkomu síðdegis snjókoma eða slydda í kvöld en síðan rigning á láglendi. Allvíða frostlaust yfir daginn á Suður- og Vesturlandi, annars frost að 10 stigum, kaldast í innsveitum fyrir norðan.