Ein stærsta ferðahelgi ársins er framundan, fyrsta helgin í júlí. Samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands verður hlýjast á Suðurlandi en fremur kalt á Vestfjörðum, fyrir austan og norðaustan.
Í hugleiðingum veðurfræðings um veðrið um helgina segir:
„Norðanátt í dag, yfirleitt á bilinu 8-13 m/s. Léttskýjað sunnan- og vestanlands, annars skýjað og rigning norðaustantil á landinu eitthvað fram á morguninn. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Hægari vindur á morgun og víða léttskýjað, en norðvestan strekkingur úti við norðausturströndina og dálítil rigning þar um kvöldið. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast sunnanlands.
Á sunnudag er áfram búist við norðlægri átt með björtu veðri á sunnanverðu landinu, en lítilsháttar rigningu norðanlands. Heldur kólnandi veður.“
Um veðurhorfur í dag segir: Norðan 8-13 m/s og léttir til sunnan- og vestanlands, en annars skýjað og dálítil rigning norðaustan til framan af degi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Um horfur morgundagsins segir: Norðan 3-10 m/s og víða léttskýjað, en norðvestan 10-15 m/s á annesjum norðaustanlands og rigning þar seint um kvöldið. Hiti að 20 stigum syðra að deginum.
Þá segir um veðurhorfur sunnudags: Norðan og norðvestan 8-13 m/s og dálítil rigning norðanlands og austanlands og hiti 5 til 10 stig, en annars léttskýjað syðra með hita að 17 stigum.