Hlýja loftið forðast ísland áfram

Hlýja loftið virðist eiga að halda áfram að forðast okkur sem mest það má. Þetta ástand sést vel á meðalþykktarspá evrópureiknimiðstöðvarinnar fyrir næstu tíu daga, eða fram til 21. ágúst.

Þetta skrifar Trausti Jónsson veðurfræðingur á bloggi sínu í dag - og bætir því við að jafnhæðarlínur sýni mikla háloftalægð rétt við landið sem öðru nafni megi nefna kuldapoll: \"Mikið lægðardrag liggur allt frá N-Kanada til suðausturs um Ísland til Spánar - í því öllu er hiti undir meðallagi - mest við Ísland,\" skrifar Trausti.

Og hann bætir við: \"Hiti í neðri hluta veðrahvolfs er meir en -2 stigum undir meðallagi. - Varla alveg svo mikið niðri í mannheimum - en nægilega mikið.\" 

Hann minnir á að hér sú um meðalkort að ræða, nokkrar sveiflur séu oftast frá degi til dags - en kannski minni nú en oft áður: \"Satt best að segja er engar teljandi breytingar að sjá á veðurlagi - þó gætu komið nokkrir þurrir dagar norðaustanlands - slíkt væri vel þegið ef býðst,\" skrifar veðurfræðingurinn.