Hlýindi yfir landinu næstu daga

Ágætur sumarhiti er yfir landinu um það leyti sem júnímánuður kveður landsmenn og spáir Veðurstofan allt að 20 stiga hita um vestanvert landið í dag, einkum á Mýrum og í Borgarfirði, en svalt er á stöku stað, ekki nema fjórar gráður á Ströndum. svo dæmi sé tekið.

Vesturland verður baðað sól og hita alla næstu daga, en Reykvíkingar geta líka vel við unað, en þar verður um 18 stiga hiti í dag. Áfram verður hlýtt í veðri út vik­una, dá­lít­il rign­ing verður um mest­allt landið á miðviku­dag en um næstu helgi er spáð allt að 22 stiga hita.

Veður­spá­in næsta sól­ar­hring fyr­ir allt landið er þessi: Aust­an og norðaust­an 5-13 m/​s. Bjartviðri vest­an- og norðvesta­lands, en dá­lít­il rign­ing eða súld með köfl­um sunn­an- og aust­an­til á land­inu. Vax­andi norðaustanátt á morg­un með rign­ingu sunn­an­lands. Hiti 10 til 20 stig, hlýj­ast á Vest­ur­landi, en 6 til 10 stig við A-strönd­ina.

Á höfuðborg­ar­svæðinu verður aust­læg eða breyti­leg átt,  3-8 m/​s, skýjað með köfl­um og lík­ur á smá­skúr­um síðdeg­is. Norðaust­an 5-10 og bjartviðri á morg­un. Hiti 12 til 18 stig.