Það má búast við talsverðum hlýindum um helgina og ekkert frost á Fróni að finna í kortunum svo heitið geti nema vel til fjalla og upp um heiðar inn til landsins. Hitinn gæti vel náð tíu gráðum í byggð.
Suðlægar áttir eru ríkjandi í loftunum og varla nokkur vindur að ráði, í mesta lagi 10 m/s og léttskýjað á Norður- og Austurlandi, en annars skýjað og þurrt að mestu. Hiti verður 2 til 10 stig á morgun, svalast inn til landsins.
Um helgina má svo gera ráð fyrir suðvestan skaplegheitaveðri, en það gætir dálítilla skúra og élja um vestanvert landið, en hægara verður eystra og bjartviðri þar um slóðir í mildu og þægilegu veðri.
Vegir eru greiðfærir um mestallt land. Þæfingur er þó frá Bjarnarfirði í Djúpavík en ófært þar fyrir norðan í Gjögur.
Og vorboðinn ljúfi er kominn í texta Vegagerðarinnar: Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi víða takmarkaður við 10 tonn.