Hvað verður um starfið þitt?

Hvað verður um starfið þitt er yfirskrift Menntadags atvinnulífsins sem verður haldinn í Hörpu  fimmtudaginn 15. febrúar kl. 8.30-12. Dagurinn, sem nú er haldinn í fimmta sinn, er að þessu sinni tileinkaður hlutverki skólakerfis og atvinnulífs við að búa fólk undir þær tæknibreytingar sem standa yfir.