Hlutur reykjavíkur eykst í hagvexti

Helstu niðurstöður frá því að farið var að taka saman tölur um hagvöxt eftir landshlutum fyrir tæpum áratug eru að hlutur höfuðborgarsvæðisins í landsframleiðslu vex stöðugt og er nú meiri en 70%.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Hagfræðistofnun HÍ hefur unnið í samstarfi við Byggðastofnun.

Framleiðsla jókst meira á höfuðborgarsvæðinu en utan þess frá 2009 til 2013. Með öðrum orðum hélt sú framvinda áfram, sem var í gangi fram að hruni bankanna 2008, að því er fram kemur í skýrslunni.

Árið 2013 var framleiðsla á höfuðborgarsvæðinu um 5% meiri en 2009 en framleiðsla stóð í stað í landsbyggðunum á sama tíma.

Íbúum fjölgaði um 3% á höfuðborgarsvæðinu frá 2009 til 2013 meðan fólki fækkaði um eitt prósent í landsbyggðunum.

Launasumma, sem hreyfist jafnan miklu minna en framleiðsla frá einu ári til annars, jókst um það bil 1% meira á höfuðborgarsvæðinu frá 2009 til 2013 en utan þess. Á hinn bóginn fjölgaði starfandi fólki í landsbyggðunum samkvæmt úrtakskönnun Hagstofu um liðlega 5% frá 2009 til 2013, meðan því fjölgaði aðeins um rúmlega 3½% á höfuðborgarsvæðinu.

Mest dróst framleiðsla saman á Suðurnesjum og á Vestfjörðum frá 2009 til 2013, eða um 11-12%. „Einkum virðist vera ástæða til þess að hafa áhyggjur af þróun mála á Vestfjörðum. Samtals hækkuðu launagreiðslur þar 10% minna en laun á landinu öllu. Á sama tíma fækkaði fólki á Vestfjörðum um 5%. Vísbendingar eru um að höfuðatvinnugreinin, sjávar- útvegur, standi höllum fæti í þessum landshluta,“ segir í skýrslunni en hana má lesa í heild hér.