Stöðugleikafé: hluti tvítalinn

Svo virðist sem stöðugleikaframlagið vegna uppgjörs slitabúa föllnu bankanna sé að hluta til tvítalið. Gjaldeyrissjóðir bankanna eru innifaldir í verðmæti bankanna við uppgjörið og líka taldir með sem sérstakt stöðugleikaframlag.

Þetta kemur fram í aðsendri grein hagfræðinganna Ólafs Arnarsonar og Ólafs Ísleifssonar í Morgunblaðinu í dag, en þeir eru sem kunnugt er þáttastjórnendur á Hringbraut og hafa þar bent á ógagnsæi við uppgjör slitabúanna og kallað eftir skýrari ábyrgð meirihlutans á þingi í þessum umfangsmiklu efnahagsaðgerðum.

Þeir hafa og sagt að stöðugleikaframlagið sé mun minna í krónum talið en gefið hefur verið í skyn - og samkvæmt grein þeirra í dag bætir ekki úr skák að hluti framlagsins sýnist vera tvítalinn.