Hluthafar stöðvi arðgreiðslur vís

Til­laga stjórn­ar VÍS um 5 millj­arða arðgreiðslu út úr fé­lag­inu nýt­ur ekki stuðnings nokk­urra af stærstu hlut­höf­um fé­lags­ins.

Þetta herma heim­ild­ir Morg­un­blaðsins en blaðið fjallar um málið í dag.

Mikil ókyrrð hefur verið á landinu milli iðgjaldagreiðenda og eigenda tryggingafélaganna sem hafa boðað milljarða arðgreiðslur á sama tíma og gjöld hækki. Eftir því sem fram kemur í Mogganum er þrýst­ing­ur á stjórn­ VÍS um að draga til­lögu sína til baka. Að öðrum kosti muni nokkr­ir af helstu hlut­höf­um fé­lags­ins kjósa gegn til­lög­unni á aðal­fundi sem boðaður hef­ur verið 17. mars næst­kom­andi.

Í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag seg­ir, að sam­kvæmt heim­ild­um hafi skapast umræða inn­an stjórn­ar fé­lags­ins í gær um hvaða viðbragða væri rétt að grípa til. \"Gerðist það í kjöl­far þess að til­tekn­ir lyk­il­hlut­haf­ar í fyr­ir­tæk­inu lýstu þung­um áhyggj­um af þeirri umræðu sem skap­ast hef­ur um fyr­ir­tækið vegna til­lögu stjórn­ar­inn­ar,\" segir í fréttinni.

Hringbraut fjallaði í gær um að ólíkt hafist dönsk og íslensk tryggingafélög að. Danskt félag, Tryg, ætlar að láta iðgjaldagreiðendur njóta góðæris með 8% iðgjaldalækkun, auk þess sem hluti ágóða rennur til góðra mála.