Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill að „illa fengnum“ hlutabréfum í útboði Símans á dögunum verði skilað. Hann sakar yfirmenn Símans enn um að fara ekki að viðurkenndum leikreglum. Í harðri færslu á eigin fésbók vitnar Ásmundur í sjálfan sig, ræðu sem hann flutti í þinginu í gær. Hann prjónar þar viðbót þar sem segir:
„Í gær flutti ég harorða ræðu í þinginu. Ég þoli ekki mimunum eða sérhagsmunadindlapot og mér finnst eins og fólkið í landinu sé orðið bólusett fyrir því þegar mönnum eru færðar milljónatugir vegan persónulegra tengsla. Ætlum við að láta næga að ergja vinnufélagana í kaffistofunni og skíta út þingmenn fyrir að gera ekki neitt en erum svo sjáf ekkert betri í aðgerðarleysinu. Nú eru hluthafar í Símanum byrjaðir að hringja í mig og senda mér skilaboð um að þeir hafi áhyggur af stöðu Símans. Ég er ekki hissa, lausnin liggur hjá yfirmönnunum sem eiga að spila leikinn eftir sömu reglum og aðrir. Það er eina sanngirnin í málinu að þeir skili illafengnum hlutabréfum til baka og fari að leikreglum markaðarins. Verum þar og fordæmum sérhagsmundindlapotið.“
Þingmaðurinn birtir svo óstytta ræðu sína í gær, en hún var að hluta til um ræðu sem Ásmundur flutti áður á þinginu þar sem hann notaði orðið \"bankaskítafýla\" með nokkuð hispurslausum hætti.
Þannig var ræða gærdagsins:
„Virðulegi forseti. Viðbrögð við ræðu minni hér fyrir skömmu um bankaskítafýluna voru mikil og þung — (ÖS: Frá mér.) hjá öllum, alls staðar í þjóðfélaginu. Það hefur komið fram að þrátt fyrir að bankastjóri Arion banka hafi gagnrýnt mig fyrir ummæli mín hefur hann nú viðurkennt að þeir hafi gert mistök í bankanum. Hjá Símanum eru hins vegar þau mistök ekki viðurkennd. Þar virðist skítastuðullinn vera kominn aftur upp í rjáfur eins og var fyrir kreppu. Þar ætla menn ekki að skila illa fengnum ránsfeng eins og þjófarnir eru tregir til.
Ég segi það við ykkur, kæru vinir hér í þessum sal, og ég segi það við þjóðina: Við þurfum þjóðarsókn gegn spillingu í bankakerfinu og í atvinnulífinu. Það er alger hörmung að horfa upp á þetta. Fólk er gáttað yfir þessu og ég hvet til þess að hið háa Alþingi hætti viðskiptum við fyrirtæki eins og Símann. Það ætla ég að gera og ég hvet þjóðina til að segja upp viðskiptum við þetta fyrirtæki. Við eigum að sýna samstöðu og standa saman. Við viljum ekki svona viðskipti á Íslandi. Við fengum nóg af því í kreppunni og við viljum ekki sjá þetta.
Það ríkir ófriður í samfélaginu út af þessu og það er okkar að taka á svona málum, setja reglur í þessum sal um að svona viðskipti geti ekki átt sér stað í samfélaginu sem misbjóða fólki dag eftir dag.“