Verð á hlutabréfum tók heilmikinn kipp upp á við vestan hafs og austan í dag, eftir verðhrun síðustu daga. Við lok kauphallarviðskipta á Wall Street hafði Dow Jones verðbréfavísitalan hækkað um fimm prósent frá opnun, sem er mesta hækkun sem orðið hefur á einum degi um rúmlega níu ára skeið. S&P 500 vísitalan hækkaði líka um fimm af hundraði og Nasdaq-vísitalan um tæp sex prósent.
Er þetta mikill viðsnúningur frá því sem einkennt hefur kauphallarviðskipti síðustu vikna, þar sem hlutabréfaverð hefur lækkað um og yfir 20 prósent á skömmum tíma.
Nánar á