Hlutabréfaórói hefur lítil áhrif hér

Gengi hlutabréfa lækkaði um rúmt prósent við opnun markaða í Evrópu í morgun. Í fyrstu viðskiptum dagsins lækkaði fútsí vísitalan um 1,3 prósent, þýska DAX vísitalan lækkaði um 1,7 og franska CAC vísitalan lækkaði um 1,4 prósent.
 
Við lokun markaða í Kína hafði gengi hlutabréfa þar lækkað um 1,3 prósent þrátt fyrir lækkun stýrivaxta sem tekur gildi í dag. Stýrivextirnir voru lækkaðir til að bregðast við fallandi gengi hlutabréfa. 

Viðskipti á Asíumörkuðum hafa sveiflast mikið til í viðskiptum dagsins. Sjanghæ vísitalan lækkaði um 1,3 prósent rétt fyrir lokun markaða eftir að hafa sveiflast frá talsverðri lækkun í um þriggja prósenta hækkun þegar mest var. 

Kínverski seðlabankinn lækkaði í gær stýrivexti og minnkaði bindiskyldu banka. Lækkunin hleypti lífi í markaði í Evrópu í gær og í Bandaríkjunum framan af viðskiptadegi, sem þó lækkuðu þó aftur fyrir lok viðskiptadags. Búist er við lækkunum á evrópskum hlutabréfamörkuðum við opnun markaða í dag í kjölfarið, en hræringarnar á Asíumarkaði smituðust strax yfir til vesturlanda á mánudag. 
 


Hreiðar Már Guðjónsson, fjárfestir segir að íslendingar geti andað nokkuð rólega vegna óróans ytra: \"Þetta þýðir nú ekki mikið fyrir okkur þar sem við núllstilltum okkar kerfi fyrir um fimm árum,“ segir hann í samtali við Vísi í gær og bendir á að undanfarin ár hafi verið talsverður vöxtur á fjármálamörkuðum og verð á hlutabréfum hafi hækkað þrátt fyrir að hægt hafi á efnahagnum sjálfum. Því hafi verið talsverður munur á milli raunverulegrar stöðu og hagnaðar. Heiðar Már segir að landsmenn þurfi ekki að hafa áhyggjur hér á landi nema fallið fari að hafa áhrif á raunhagkerfi heimsins.

\"Þetta hefur gerst oft áður að markaðir fara fram úr sjálfum sér. Græðgi fólks kemur hægt og rólega og stigmagnast meðan hræðslan við tap kemur skyndilega. Því eru leiðréttingar á mörkuðum svona rosalega skarpar,“ segir Heiðar Már við vefinn og bendir á að í þessu öllu saman hafi verið áhugavert að fylgjast með evrunni en hún hefur styrkst mjög mikið líkt og dollarinn: \"Evran er í raun hið nýja yen,“ segir hann. Vísar hann til þess að frá hruninu í Japan árið 1989 hafi menn litið á framtíðarhorfur Japans með eilitlum efasemdum og að þar sé lítið að gerast. Yenið verði lágvaxtamynt um ókomna framtíð.