Hluta­bréf lækka um 40 þúsund ma.kr.

Óhætt er að segja að hugmyndir um tollstríð séu nú farnar að grafa undan tiltrú fjárfesta á því sem gengur á í Bandaríkjunum. Tæknifyrirtækin eru einnig undir smásjánni, og gætu þurft að takast á við þyngra regluverk.

Í umfjöllun Wall Street Journal kemur fram að fimm af stærstu tækni­fyr­ir­tækj­un­um, sem nefnd hafa verið FAANG-hluta­bréf (FA­ANG-­stocks), hafi lækkað um 397 millj­arða Banda­ríkja­dala sam­an­lagt á um þremur vik­um, eða sem nemur um 40 þús­und millj­arða króna. Face­book, Amazon, App­le, Net­fl­ix, og Google (Alp­habet) eru félögin sem telj­ast til hina svo­nefndu FAANG-hluta­bréfa. Þrátt fyrir lít­ils háttar hækk­anir í dag, þá virð­ist sem áhyggjur fari vax­andi.

En hvað veld­ur?

Lesa alla greinina eftir Magnús Halldórsson á Kjarnanum hér