Hlustaðu á undarlega símtalið sem slitnaði - „Það er búið að slökkva á henni“

Furðulegt atvik átti sér stað í útvarpsþætti Sigga Hlö í dag. Líkt og alþjóð veit heldur Siggi úti einum vinsælasta útvarpsþætti landsins en í honum spilar hann góða tónlist og tekur við símtölum hlustenda.

Kona hringdi í þáttinn í dag en þáttarstjórnendur virðast hafa skellt á hana vegna þess í hvaða átt frásögn hennar stefndi.

„Hvað helduru að hafi komið fyrir mig núna, ha?“ spurði konan og Siggi svaraði: „Ég þori ekki að giska,“

„Allsnakin í potti með þremur karlmönnum,“ svaraði konan um hæl og hló, og bætti við „Það eru ekki allir sem...“ en þá slitnaði sambandið.

Siggi tjáði sig þá um atvikið við hlustendur. „Það er búið að slökkva á henni. Einhvern veginn skil ég það vel. Þetta var að fara í einhverja skrýtna átt.“

Símtalið hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum, en fólki finnst það almennt sprenghlægilegt og líka skrýtið eins og Siggi kom sjálfur inn á.

Hér fyrir neðan má hlusta á það.