Eitthvað fór úrskeiðis í hljóðblöndun í atriði Systra, þegar þær fluttu lag sitt fyrir framan dómnefnd í kvöld. Hljóðið virtist hækka og lækka á vitlausum stöðum og harmóníurnar heyrðust ekki almennilega í salnum. Viðstaddir staðfesta að mixið hafi ekki átt að hljóma svona en flutningurinn skiptir miklu máli því dómnefnd byggir á honum í stigagjöf sinni.
Tveir blaðamenn á vegum Fréttablaðsins eru í salnum þar sem áhorfendur urðu varir við bilun í hljóðblöndun flutningsins á sérstaklega mikilvægum stað þegar rödd Elínar hefði átt að fá að njóta sín, en einmitt þá féll hljóðið niður.