Eiríkur Örn Norðdahl skáld og rithöfundur segir skrýtið að upplifa að bók sem hann hafi skrifað sjálfur sé komin á Hljóðbókasafn Íslands í upplestri eins af leikurum þjóðarinnar án þess að hann hafi fengið svo mikið sem tölvupóst um að framtakið stæði til. Einkum sé þetta einkennilegt í ljósi þess að hann hafi sjálfur lesið inn bókina sem um ræði, Heimsku.
Umræður hafa skapast um þessa staðreynd á fésbók Eiríks Arnar. Blaðamaðurinn og bókmenntarýnirinn Ásgeir H. Ingólfsson segir að tvíverknaðurinn sé verstur „...væri ekki svona almennt betra fyrir alla aðila að forlagið/höfundurinn og Blindrabókasafnið gerðu með sér e-konar samstarfssamning um lesturinn sjálfan (hvort það sé höfundur eða leikari ...), þótt þau miðli þessu svo eftir mismunandi leiðum?“
Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður segir: „Það er í gildi samningur milli mennta- og menningarmálaráðuneytis, Rsí og útgefenda varðandi bókalesturinn. Það væri ekki vinnandi vegur að spyrja hvern stakan höfund um leyfi. En ef höfundar vilja lesa sjálfir ættu þeir að melda sig fyrirfram og gá hvort bók þeirra hafi verið valin til lestrar.“
Þórunn Hrefna blm. og rithöfundur segir: „Ég hef það á afrekaskránni að hafa rifist við Blindrabókasafnið, skömmu fyrir sjálfa Fæðingarhátíð Frelsarans, einmitt vegna þess sem þú lýsir. Mér fannst undarlegt að hafa ekki verið látin vita af upplestri/upptöku.“