Hlín Agnarsdóttir rithöfundur og leikhúsmanneskja hnýtir af gamansemi í efnistök Kiljunnar, bókmenntaþáttar Egils Helgasonar, á Rúv í vikunni.
Í færslu á facebbok þar sem Hlín fer frjálslega með „staðreyndir“ úr eigin lífi eins og oft áður í húmorísku skyni fjallar hún undir rós um viðtal Egils við Mikael Torfason vegna nýrrar bókar höfundarins og virðist hafa fleiri viðtöl í þættinum í huga sem snúi að lækningum fremur en list. Hlín virðist þykja sem listrænt gildi viðtala í þættinum hafi orðið undir læknasögum en Mikael ræddi af hispursleysi blóð og saur úr eigin bernsku við Egil í Kiljunni.
„Við hjónin (sem misstum allt okkar í kreppuni) erum ekki sérlega menningarlega sinnuð enda aðeins með verslunarskólapróf. Það kemur þó fyrir að við horfum á Kiljuna sem við héldum að væri bókmenntaþáttur en hefur nú breyst í fréttir úr læknavísindunum. Ekki þar fyrir að við höfum mikinn áhuga á sjúkdómum og alls konar kvillum sem hrjá mannkynið, kannski vegna þess að við erum bæði með greiningu, maðurinn minn er með slæmt sveppaóþol ekki bara í þörmum, heldur á húðinni líka sem steypist reglubundið út í sveppamunstri sem er mjög fátítt eftir því sem húðsjúkdómalæknirinn hans segir. Sjálf er ég með viðvarandi umönnunarstreituröskun og var greind strax eftir hrun en maðurinn minn fór aldrei til læknis,“ skrifar Hlín með ískrandi kímni.
Hlín heldur áfram á miklu flugi og má greina samfélagsbrodda út og suður í færslu hennar:
„Það var ekki fyrr en hann var farinn að líta út eins og sveppur að hann sá sitt óvænna og dreif sig til læknis en þá var hann líka búinn að missa allt, náttúruna líka en hver þorir að viðurkenna það? Nú við hjónin skildum en tókum svo saman aftur eftir að hafa loks látið undan þrýstingi fullorðinna barna okkar sem hótuðu að fara með æsku sína í blöðin ef við leituðum okkur ekki hjálpar. Við höfðum samband við hjónaráðgjafa og eftir nokkur samtöl kom í ljós að við erum bæði fullorðin börn sérvitringa, pabbi minn safnaði rennilásum en mamma mannsins míns tölum. Hjónaráðgjafinn sagði að þau hefði kannski átt verða hjón en allavega, okkur hjónunum finnst ægilega gaman að horfa á Kiljuna þessar vikurnar. Það er ekki svo mikill munur á bókmenntum og læknavísindum þegar allt kemur til alls.“
Á öðrum fésbókarþræði spyr Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari, hvaða sjónarmið ráði, hvaða skáld, rithöfunda og viðmælendur Egill velji í Kiljuna.