\"Það hefur gengið djöfullega að eiga við ástandið þar sem það er svo mikil leðja í þessu og það er víða að flæða inn í hús,“ segir Ámundi Gunnarsson, slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar. Hólavegur hefur farið í sundur á Siglufirði og mikið vatn safnast saman á götum bæjarins.
Vatnsveðrið sem gengið hefur yfir norðanverðan Tröllaskagann í dag er með því mesta frá því aurskriðurnar féllu á svæðinu seint á níunda áratug síðustu aldar, en þá fylltust fjölmörg hús af eðju og vatni eftir langvarandi rigningar.
Ámundi segir við fréttavefinn visir.is að búið sé að rigna óhemju mikið síðustu tvo daga og það hafi losnað um allrahanda jarðveg sem sé að skila sér niður í bæinn: \"Hvanneyraráin hefur stíflast með aur og drullu. Svo fór úr einum snjóflóðagarðinum og kom niður í hús.“
Hann segir að utan við bæinn og á Almenningum séu skriður farnar á veginn: \"Það eru örugglega þúsundir tonna á veginum þannig að hann opnast ekkert fyrr en eftir helgi.“
Slökkviliðsstjórinn segir að björgunarsveitarmenn, bæjarstarfsmenn og slökkviliðsmenn séu að störfum þessa stundina til að lágmarka tjónið. Engin slys hafi orðið á fólki en vatnstjón er mikið.
Ámundi segir við visir.is að verið sé að dæla úr húsum, en að sjávarstaðan sé sérstaklega há sem hafi gert mönnum erfitt fyrir.