Hlíðarfjall eitt besta skíðasvæði heims

Í síðustu viku birti vefurinn Unofficial Networks sem er hluti af USA Today keðjunni, val  á 12 flottustu eða mest spennandi (exotic) skíðasvæðum heims. Á þeim lista er að finna Hlíðarfjall ofan Akureyrar. Skemmst er að minnast þess að fyrr á árinu valdi ferðamannavefurinn Lonely Planet Akureyri sem besta áfangastaðinn í Evrópu árið 2015 þannig að ljóst er að vinsældir bæjarins aukast nú hratt hvort heldur sem er að sumri eða vetri. Listann frá Unofficial Networks má sjá HÉR.

 Nú er að kólna á Norðurlandi. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, segir að menn séu í óða önn að gera sig klára fyrir veturinn. „Mér sýnist vera kuldatíð í kortunum og vonandi getum við bráðum farið að skjóta glænýjum snjó úr snjóbyssunum okkar. Síðasti vetur var nokkuð umhleypingasamur og ekki sá allra besti fyrir okkur hér í Hlíðarfjalli en mig dreymdi nokkrar feitar rjúpur í nótt sem kvað vera fyrir miklum snjó og blíðu veðri,“ segir Guðmundur Karl.