Hleypur í nafni sonar sem tók líf sitt

Fanný Krist­ín Heim­is­dótt­ir ætl­ar að skokka 10 kíló­metra í Reykja­vík­ur­m­araþon­inu og safna þar áheit­um fyr­ir Birtu sem eru lands­sam­tök for­eldra sem misst hafa börn eða ung­menni í skyndi­leg­um dauðdaga. Sjálf missti hún ung­an mann sem féll fyr­ir eig­in hendi.

„Ég missti son minn í mars. Hann féll fyr­ir eig­in hendi. Hann var ekki barn en var ung­ur maður og ég valdi Birtu vegna þess að sam­tök­in styðja við for­eldra sem hafa misst börn sín í skyndi­leg­um dauðdaga,“ seg­ir Fanný við mbl.is í dag.

„Maður hugs­ar þegar svona ger­ist, hvað gæti verið verra en það sem kom fyr­ir mig? Þá hugsa ég að það er aldrei hægt að segja svona verra/​betra á ein­hverj­um skala. Það hlýt­ur að vera hræðilegt að missa lítið barn sem maður hef­ur ennþá svo mikla vernd­ar­til­finn­ingu gagn­vart.“

Fanný er í sam­tök­un­um, Birtu, og til­kynnti þeim að hana langaði að hlaupa og safna fé fyr­ir sam­tök­in. „Söfn­un­in hef­ur hingað til gengið mjög vel og ég er með stóra styrkt­araðila en það er líka mik­il­vægt að muna að margt smátt ger­ir eitt stórt,“ segir hún við veginn