Birgir hleypur 330 kílómetra um fjöll og firnindi

Í gær hóf Birgir Sævarsson 330 kílómetra hlaup um Aosta dalinn á Ítalíu. Birgir er nú þegar kominn vel á veg og er búinn að hlaupa 100 kílómetra. Hlaupið er svo sannarlega ekki heiglum hent þar sem leiðin einkennist af miklum hækkunum, enda mikið um fjallaskörð.

Gunnar Már Gunnarsson, vinur Birgis, greinir frá því á Twitter-síðu sinni hvernig Birgi gengur. Gunnar Már segir til dæmis að samanlagðar hækkanir á leiðinni séu um 24.000 metrar, sem samsvari 12 ferðum upp Hvannadalshnjúk.

Svakalegur gangur á Bigga í augnablikinu. Búinn að fara yfir hæsta skarðið á leiðinni, 3299m og samtals komnir um rétt rúmlega 100km eftir sólarhring á hlaupum og stutt í skála þar sem planið er að taka smá pásu (1klst). #tordesBiggi pic.twitter.com/WDXQ7wUQHs

— Gunnar nokkur (@gunnare) September 9, 2019

Birgir er reyndur hlaupari og hefur til að mynda unnið Hengil Ultra Trail, sem er 100 kílómetra ultramaraþon, og þar með lengsta maraþon Íslands. Auk þess hefur hann unnið fjölda annarra hlaupa hér á landi og lent í öðru og þriðja sæti í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka.