Það mátti heyra dillandi og á stundum ískrandi hlátur við upptökur á þættinum Kvennaráðum á sjónvarpsstöðinni Hringbraut fyrr í dag, en þátturinn, sem er í umsjá Bjarkar Eiðsdóttur, var frumsýndur klukkan 21.30 í kvöld. Þar ræddu leikkonurnar Edda Björgvinsdóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir, ásamt stjórnmálastuðboltanum Margrétu Gauju Magnúsdóttir um kerksni kvenna og hvernig húmor þeirra er á stundum á skjön við gamanmál karla. Í þættinum kom fram að á meðan karlar þyrftu aðeins einn bjór til að standa upp og fara með gamanmál þyrftu konum á stundum meiri undirbúning fyrir grínið, enda varfærnari og jafnvel vandvirknari. Oft væri það svo að konur ættu erfitt með að halda uppi gríni í karlahópi, enda gæti margt þar misskilist, en konur að gera grín að konum fyrir konur væri á sama tíma veisla kímninnar.
Þorsteinn Guðmundsson grínari kom einnig við sögu í þættinum, sem málsvari karla, en hann sagði að konur væri mjög að sækja í sig veðrið í uppistandi; á síðasta námskeiði hans hefðu konur verið í miklum meirihluta.
Þátturinn Kvennaráð er endursýndur um helgina á völdum tímum, en hann er einnig hægt að nálgast á morgun undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is þar sem allir þættir Hringbrautar birtast daginn eftir frumsýningu.