Nýjar tillögur um orkuskipti í samgöngum gera ráð fyrir hleðslustöðvum við fjölbýlishús og hleðslu úr ljósastaurum svo eitthvað sé nefnt, segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar.
Borgarráð samþykkti í gær tillögu borgarstjóra um að Þorsteinn R. Hermannsson samgöngustjóri Reykjavíkurborgar veiti verkefnum um orkuskipti og rafbílavæðingu forystu fyrir hönd borgarinnar.
Samgöngustjóri Reykjavíkurborgar mun leiða verkefnið í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur en það er hluti af innleiðingu loftslagsáætlunar borgarinnar.
Nánar um loftslagsstefnu Reykjavíkur hér.