Hlaupið til styrktar kvennadeildar

Þriðja Globeathon-hlaupið og gangan fer fram á sunnudag, en þar er á ferðinni alþjóðlegt átak þar sem vakin er athygli á krabbameini í kvenlíffærum. Fyrsta árið tóku 70 lönd í 280 borgum þátt, en nú er stefnt að þátttöku 80 landa.

Í ár eru það Líf styrktarfélag og Krabbameinsfélagið sem standa saman að þessum viðburði hér á landi, en skipuleggjendur stefna að því að slá metið frá því í fyrra þegar 280 manns tóku þátt í göngunni og hlaupinu sem er fyrir alla, konur, börn og karla.

Skráning er hafin á hlaup.is, en sjálft hlaupið hefst við Háskólann í Reykjavík klukkan 11:00 á sunnudag og verður boðið upp á fimm og tíu kílómetra hlaup með tímatöku og einnig fimm kílómetra göngu. Ólöf Nordal, innanríkisráðhera mun ræsa hlaupið.

Vegleg verðlaun eru í boði að sögn skipuleggjenda viðburðarins, þar á meðal hátt í 80 stórglæsilegir útdráttarvinningar.

Ágóðinn rennur óskiptur til Líf styrktarfélags kvennadeildar Landspítalans sem hefur þann tilgang að bæta aðbúnað og þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu sem og kvenna sem þurfa umönnun vegna kvensjúkdóma.