Laugavegshlaupið hófst klukkan níu í morgun og gekk ræsing mjög vel að sögn Önnu Lilju Sigurðardóttur upplýsingafulltrúa hlaupsins. Í samtali við mbl.is segir hún aðstæður hafa litið vel út í byrjun, bjart yfir en þó fremur kalt í veðri.
Erfitt færi er á leiðinni í ár samanborið við fyrri ár, en af um 55 kílómetrum eru átta í snjó. Anna segir að snjórinn hafi ekki haft eins mikil áhrif á hlauparana og menn höfðu hræðst.
Þetta er í 19. sinn sem Laugavegshlaupið fer fram, en að þessu sinni taka 400 keppendur þátt. Áætlað er að fyrstu menn komi í Húsadal milli 13 og 14. 77% þeirra sem taka þátt hafa aldrei hlaupið það áður. Aldur þátttakenda er frá 20 ára til 66 ára en fjölmennasti aldurshópurinn eru hlauparar á aldrinum 40-49 ára.