Hlakkar mest til föðurhlutverksins

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson er gestur fótboltaþáttarins 433 á sjónvarpsstöðinni Hringbraut klukkan 21.15 í kvöld, en þættirnir heimsóttu á dögunum velflesta íslensku leikmennina sem spila með enskum félagsliðum. Þessi knái norðanmaður kemur inn á nýtt hlutverk sitt í þættinum, nefnilega föðurhlutverkið sem hann segist hlakka mest til nú um þessar mundir; raunar hafi hann misst af fæðungu frumburðar síns, sem reyndist vera dóttir, en hann var að spila fyrir Íslands hönd í Kasakstan á þeirri stundu.


Aron kveðst kunna vel við sig í Cardiff þar sem hann spilar fyrir samnefnt félagslið og skipti litlu þótt það leiki í annarri deild en þeirra allra bestu á þessari leiktíð. Hann sjái framtíð sína fyrir sér með welska liðinu.


Hann segist alltaf vera jafn stoltur að leika fyrir Íslands hönd. Sú tilfinning dvíni aldrei að ganga út á völlinn sem fulltrúi þjóðar sinnar og gefa sig allan í leikinn fyrir fólk sitt heima á Íslandi.


Þátturinn er í umsjá Harðar Jónssonar og frumsýndur sem fyrr segir klukkan 21.15 í kvöld.


Horfðu á klippu úr þættinum hér: