Þór Saari, fyrrum þingmaður á Alþingi, sem fagnar í dag útgáfu eigin bókar um ýmsar brotalamir Alþingis, segir það hlægilegt að þigmenn teljist ekki tengdir mökum sínum.
Með ummælum sínum blandar þingmaðurinn fyrrverandi sér til leiks í umræðu um mál málanna, hvort fjármál eiginkonu forsætisráðherra hljóti að hafa áhrif á hans stjórnmálalíf.
Sjálf segja forsætisráðherrahjónin að fullur aðskilnaður sé milli bissnessumsýslu eiginkonunnar og stjórnmálavinnu Sigmundar Davíðs. Eigi að síður benti eiginkona Sigmundar Davíðs blaðamönnum í gær á að ræða við Jóhannes Þór, aðstoðarmann Sigmundar Davíð, þegar fregna var leitað í kjölfar yfirlýsingar forsætisráðherrafrúarinnar á facebook í fyrrakvöld þar sem hún upplýsti um félag í sinni eigu sem komið hefur á daginn að er vistað á Tortóla.
\"Þetta kerfi að þingmenn séu ekki tengdir mökum sínum er svo hlægilegt að enginn kaupir það kannski þingmenn sjálfir. Það sama virðist gilda um hæstaréttardómara sbr. Karl Axelson og Fjármáleftirlitið varðandi feðgana Björgólf og Björgólf,\" skrifar Þór Saari í athugasemd við færslu Jóhannesar Þórs sem ber blak af eigin yfirmanni.
\"Að þú skulir reyna að verja þetta, Jóhannes og svo tekur Ragnheiður Elín Árnadóttir undir. Hvað hefur hún að fela?\" Spyr Þór Saari.
Jafnréttisrökum hefur verið teflt fram í málinu. Að nú séu þeir tímar að eiginkonur séu sjálfstæðar og að umræðan sé skollaleikur til að koma höggi á forsætisráðherra. Þór Saari segir þar sem hann tekst á við þá sem verja Sigmund Davíð á síðu aðstoðarmanns hans að slík rök séu útúrsnúningur. Ekki sé hægt að skilgreina maka sem ótengda aðila.