Hjúkrunarfræðingar náðu óvænt að landa nýjum kjarasamningi við samninganefnd ríkisins í gærkvöld eftir að fundur þeirra, sem hófst á tíunda tímanum í gærmorgun, tók nokkuð óvænta stefnu um miðbik dagsins.
Ekkert útlit var fyrir því að nokkur árangur yrði af fundi þessara deiluaðila í gær, enda var það mat Ólafs G. Skúlasonar, formanns Félags hjúkrunarfræðinga í gærmorgun að fremur væri boðað til fundarins af skyldutækni ríkissáttasemjara en af efnislegum ástæðum viðsemjenda þeirra.
Annað kom á daginn.
Samninganganefnd ríkisins hafði í fórum sínum nýja útfærslu á þeim samningsdrögum sem legið hafa fyrir og hún gaf tilefni til frekari skoðunar af hálfu hjúkrunarfræðinga.
Niðurstaðan er þessi; 18 til 20% launahækkun á samningstímanum sem taki til þriggja ára.
Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir þá samninga sem undirritaðir voru í gærkvöld skárri kost en þau þvingunarúrræði sem þeim hafi verið sett með lögum á verkföll. Í samtali við RÚV hafði hann þetta að segja um lyktir gærdagsins: \"Við mátum stöðuna þannig miðað við þessu þvingunarúrræði sem stöndum frammi fyrir eftir að lög voru sett á verkfall hjúkrunarfræðinga, að það sé vænlegri kostur að hjúkrunarfræðingar fái svigrúm til að kjósa um það samkomulag sem náðst hefur.“ Hann metur það svo að samningurinn sé svipaður þeim sem gerðir hafa verið á almennum markaði undanfarið. Hann kveðst vera sáttur með árangurinn við aðstæður.
Hátt í 200 hjúkrunarfræðingar um allt land hafa sagt upp störfum frá því lög voru sett á kjaradeilu þeirra fyrir tíu dögum, en óvíst er hvaða áhrif nýgerðir samningar hafa á þær uppsagnir, enda á eftir að samþykkja hann í hópi félagsmanna.