Félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga samþykktu verkfallsboðun hjá þeim hjúkrunarfræðingum sem starfa samkvæmt kjarasamningi félagsins. 76,28% félagsmanna tóku þátt og voru 90,65% fylgjandi verkfallsboðuninni.
Samninganefnd ríkisins hefur röskar tvær vikur til stefnu, eigi ekki að koma til verkfalls en samkvæmt verkfallsboðuninni á það að hefjast á miðnætti 27. maí. Það er ótímabundið og nær til rúmlega tvö þúsund hjúkrunarfræðinga. Krafa þeirra er að launaþróun hjúkrunarfræðinga taki mið af nýlegri launahækkun lækna.
Ef af þessari vinnustöðvun verður lamast starfsemi Landspítalans og margra annarra mikilvægustu heilbrigðisstofnana landsins, enda bætist þá verkfall hjúkrunarfræðinga við vinnustöðvun geislafræðinga og annarra háskólamenntaðra starfsmanna spítalanna sem nú þegar hefur haft afdrifarík áhrif á þjónustu spítalans við veika landsmenn.
Óveðursskýrin hrannast upp á himni atvinnulífsins. Tugþúsundir félagsmanna VR, Landssambands verslunarmanna og Flóabandalagsins greiða atkvæði um boðun verkfalls á morgun, en fyrir eru í tímabundnum verkfallsaðgerðum tíu þúsund félagar í Starfsgreinasambandinu sem stefna í ótímabundið verkfall eftir tvær vikur.