Hjúkrun vill 66 þúsund króna hækkun

Þeir 2000 hjúkrunarfræðingar sem stefna nú á verkfall, náist ekki samningar við þá á næstu tveimur vikum, vilja að laun þeirra verði hækkuð um 66 þúsund krónur. Greinilega er mikil samstaða í þeirra hópi enda samþykktu yfir 90% þeirra verkfallsboðunina.


Byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga eftir fimm ára nám eru á bilinu 304 til 311 þúsund krónur að því er forráðamenn stéttarfélags þeirra fullyrða. Meðallaunin eru hins vegar um 440 þúsund krónur. Ólafur Guðbjörn Skúlason formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir í Morgunblaðinu í dag að félagsmenn sínir hafi dregist aftur úr viðmiðunarhópum á síðustu misserum svo nemi 14 til 25%. Við það geti stéttin ekki sætt sig og þess v egna sé jafn mikil samstaða í hópnum og raun beri vitni.


Verkfall hjúkrunarfræðinga er boðað 27. maí næstkomandi og er það ótímabundið sem merkir að starfsemi Landspítalans og annarra helstu sjúkrastofnana í landinu mun lamast.