Hjúkrun: gætum ráðið 100 manns strax

Útlit er fyrir að gríðarlegur og viðvarandi skortur verði á hjúkrunarfræðingum á helstu spítölum landsins, en skólakerfið skilar mun færri heilbrigðisstarfsmönnum út í atvinnulífið en þörf er á.

Þetta kemur fram í frétt á visir.is í dag, en þar er rætt við Sigríði Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítalanum sem segir að þar á bæ geti menn ráðið um 100 hjúkrunarfræðinga í stöður á spítalanumr strax í dag: \"Á næstu þremur til fjórum árum er áætlað að 900 hjúkrunarfræðingar öðlist rétt til töku lífeyris á Íslandi en á sama tíma erum við að útskrifa rúmlega 400 hjúkrunarfræðinga, “ segir hún við vefinn.

Rætt er við Sigríði í tilefni af efnismiklu svari sem barst Steingrími J. Sigfússyni, þingmanni Vinstri grænna frá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra í síðustu viku um horfur í mönnun heilbrigðisþjónustunnar, en þar er komist að þeirri niðurstöðu að staðan sé viðunandi. Því er Sigríður ósammála og bendir á fyrrgreindar tölur máli sínu til stuðnings.

Í svari ráðherra var vitnað til mannfjöldaspár: \"Ef spáin er borin saman við þróun síðustu ára fjölgaði hjúkrunarfræðingum hraðar en hámarksspá um eftirspurn gerði ráð fyrir á árunum 2010 til 2013 og árið 2014 var fjöldi þeirra orðinn 250 meiri en spáð var.“

Sigríður segist ekki hafa undir höndum þau gögn sem velferðarráðuneytið byggir á í svarinu til Steingríms, en segir að innan spítalans séu verulegar áhyggjur af skorti á heilbrigðisstarfsfólki á næstu misserum. Það eigi ekki síst við um hjúkrunarfræðinga almennt og sé í takti við það sem er að gerast um heim allan vegna aukinnar þjónustuþarfar með fjölgun aldraðra og langveikra, en víða um heim hefur þessari þróun verið svarað með því að fela hjúkrunarfræðingum fleiri verkefni í stað þess að fjölga læknum.