Hjörtur Júlíus Hjartarson hefur verið ráðinn til starfa sem mannauðsráðgjafi í mannauðsdeild Hrafnistuheimilanna. Þetta kemur fram á vef Hrafnistu.
Hjörtur hefur síðustu ár starfað sem fjölmiðlamaður en lét af störfum eftir að hann var sendur heim af HM í Rússlandi vegna óviðeigandi hegðunar. Hörður var þá á vegum útvarpsstöðvarinnar X-ins 977. Hjörtur var þá sakaður um að hafa áreitt Eddu Sif Pálsdóttur, íþróttafréttamanns á RÚV. Hjörtur hafði verið í áfengisbindindi í lengri tíma en féll í Rússlandi.
Edda Sif kærði Hjört fyrir líkamsárás árið 2012 en þau náðu samkomulagi þar sem hann viðurkenndi fulla ábyrgð og fór málið því ekki fyrir dóm. Atvikið átti sér stað þegar val á Íþróttamanni ársins fór fram á Grand Hótel. Samkvæmt heimildum DV á sínum tíma veittist Hjörtur að Eddu Sif inni á salerni staðarins. Málið var alvarlegt en farið var með hana á bráðamóttöku Landspítalans þar sem hún fékk áverkavottorð. Eftir atvikið var Hjörtur rekinn af RÚV.
Víðir Reynisson, öryggisstjóri KSÍ, sagði í samtali við DV að Hjörtur hefði sýnt af sér óviðeigandi hegðun. Víðir sagði:
„Það er það sem við vitum, að hann sýndi af sér einhverja hegðun sem að hans vinnuveitendur eru ekki sáttir með og þeir kölluðu hann heim. Þetta er ákvörðun hans yfirmanna að kalla hann heim.“
Hjörtur tjáði sig í samtali við Fréttablaðið um atvikið:
„Aukinheldur gat ég ekki boðið samferðamönnum mínum upp á áframhaldandi veru hér. Það er erfitt að vera hér í þessum sporum og vanlíðanin óbærileg. Ég hef ekki snert áfengi eftir þetta eina kvöld og þannig mun ég hafa það áfram. Ég mun klífa þennan skafl sem ég er búinn að koma mér í.“
Hjörtur ákvað svo árið 2018 að flytja af landi brott og fór í nám í Barcelona. Þegar Hjörtur tilkynnti að hann væri á leið af landi brott, hafði hann þetta að segja:
„Ég er þakklátur fyrir reynslu undanfarinna mánuða. Afar þroskandi ferli sem hefur kennt mér mikið, bæði hvað varðar sjálfan mig og ekki síður um hvað ég á mikið af góðu fólki i kringum mig.“
Hjörtur flutti síðan aftur heim og hefur eins og áður segir verið ráðinn til Hranistu: Í tilkynningu á vef Hrafnistu segir um ráðninguna:
„Hjörtur er með meistarapróf í mancauðsstjórnun auk undirgráðu í stafrænni markaðssetningu frá EAE Business School í Barcelona. Í námi sínu lagði hann áherslu á jákvæða sálfræði, markþjálfun og kjaramál. Fyrir er Hjörtur með meistarapróf í blaða- og fréttamennsku.
Hjörtur vann lokaverkefni sitt í mannauðsstjórnun í samvinnu við Vodafone og fjallaði þar um innleiðingu sveigjanlegs vinnutíma hjá fyrirtækinu. Hann kannaði hvaða áhrif sveigjanlegur vinnutími hefur á líf fólks, hvort sem um ræðir í vinnu eða einkalífi. Hjörtur hefur víðtæka stjórnunarreynslu frá fyrri störfum sem deildarstjóri, vaktstjóri, ritstjóri og umsjónarmaður ýmissa þátta í útvarpi og sjónvarpi.“ Þá segir að lokum:
„Við bjóðum Hjört velkominn í mannauðsteymi Hrafnistuheimilanna.“